Home
UMFH
Síðustu leikir 5. flokks Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigmar Sigþórsson   
Föstudagur, 19. ágúst 2011 20:32

5. flokkur hefur fengið mikið að spila núna undafarið og gengið misvel.

 

Hrunamenn 0-12 Njarðvík

A lið

 

Okkur gekk ekki nógu vel gegn Njarðvík, hefðum getað betur.

 

Hrunamenn 2-11

B lið

 

B liðið átti svipaðann leik og A liðið en náði þó að skora 2 mörk.

 

Hrunamenn 0-4 Fjölnir

A lið

 

Við kepptum við Fjölnir, eitt besta liðið í riðlinum. Við stóðum okkur frábærlega, þrátt fyrir tap.

 

Hrunamenn 1-5

B lið

 

B liðið stóð sig líka frábærlega gegn Fjölni. Einar skoraði frábært mark fyrir Hrunamenn.

 

Hrunamenn 3-2 BÍ/Bolungarvík

A lið

 

A liðið vann glæsilegan sigur á BÍ/Bolungarvík. Þetta var æsi spennandi leikur en strákarnir börðust, spiluðu mjög vel og gáfu sig alla fram. Gummi skoraði tvö mörk og Gústi eitt.

 

Hrunamenn 3-5 BÍ/Bolungarvík

B lið

 

B liðið byrjaði sinn leik mjög vell og staðan í hálfleik var 2-1. Svo misstum við það niður og töpuðum 3-5. B liðið stóðu sig líka vel en bara óheppnir. Einar skoraði tvö mörk og Þórdís eitt.

 

 
Leikir helgarinnar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigmar Sigþórsson   
Mánudagur, 15. ágúst 2011 20:55

Hrunemenn 1-6 BÍ/Bolungarvík

3. flokkur

 

3. flokkur tapaði gegn BÍ/Bolungarvík á Flúðavelli, Nikulás skoraði eina mark Hrunamanna.

 

Skallagrímur 7-3 Hrunamenn

4. flokkur

 

Strákarnir í 4. flokki fóru í Borganes en töpuðu gegn Skallagrími. Jóhann, Aron og Ágúst skoruðu allir.

 

4. flokkur er samt kominn í úrslitakeppnina sem verður í Borganesi 20-21 ágúst.

 

Ægir 7-2 Hrunamenn

4. flokki Kvenna

 

Stelpurnar fóru í dag til Þorlákshafnar en þær töpuðu 7-2.

 

Svo um helgina, þá fóru 7 og 8. flokkur á atlantsmótið og skemmtu sér vel. 5. flokkur var líka að keppa en þeir fóru í heimsókn til Álftanes.

 

Núna er mikið að vera um í fótboltanum svona á loka sprettinum og gott að fylgjast með blogginu til að ná leikjum.

 
Snæfellsnes - Hrunamenn 3-9 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigmar Sigþórsson   
Fimmtudagur, 11. ágúst 2011 17:36

Snæfellsnes 9-3 Hrunamenn

 

Strákarnir í 3. flokki fóru í heimsókn til Snæfellsnes, það fór ekki svo vel en Snæfellsnes vann 9-3. Skúli skoraði tvö mörk fyrir okkur og Björgvinn eitt.

 
Stjarnan - Hrunamenn 5. flokkur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigmar Sigþórsson   
Þriðjudagur, 09. ágúst 2011 21:32

5. flokkur heimsótti Stjörnuna með tvö lið til að keppa. Það fór ekki eins vel og vonað var enda Stjarnan á toppinum á deildinni ásamt FH.

 

Stjarnan 6-0 Hrunamenn

A. liðin

 

Stjarnan 9-0 Hrunamenn

B. liðin

 
Síðustu leikir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigmar Sigþórsson   
Þriðjudagur, 09. ágúst 2011 21:07

Hrunamenn 7-1 Hamar

3. flokkur

 

Hrunamenn mættu Hamri í 3. flokki á Flúðavelli. Þá skoruðu Jónas tvö mörk, Pétur tvö mörk, Aron tvö mörk og Guðjón eitt mark. Frábær sigur.

 

Þá fór 3 og 4 flokkur til Ísafjarðar og keppti við BÍ/Bolungarvík.

 

BÍ/Bolungarvík 3-3 Hrunamenn

3. flokkur

 

3. flokkur gerði 3-3 jafntefli. Pétur skoraði 2 og Björgvin eitt mark.

 

BÍ/Bolungarvík 1-5 Hrunamenn

4. flokkur

 

4. flokkur vann sinn leik 5 mörkum gegn einu. Águst skoraði tvö, Aron með tvö og Gylfi skoraði eitt.

 

Hamar 3-7 Hrunamenn

3. flokkur

 

3. flokkur mætti aftur Hamri á stuttu tímabili vegna frestun leikja. Við unnum 3-7 líkt og í hinum leiknum. Jónas var með fimmu, Pétur með eitt mark og Guðjón eitt.

 

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 09. ágúst 2011 21:32
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 8